Já ég var klukkuð af
henni Birnu...vá hvað ég er glöð. Takk æðislega Birna. En hér
kemur það:
núverandi tími:
15:00
núverandi föt: Casall
svartar buxur, bleikur Puma bolur og blár Nike jakki
núverandi skap: Alveg
bara ágætt
J
núverandi hár:
Úff...hárið að verða dökkt aftur, nenni ekki að eyða peningum og
tíma í það að fara í litun. Og bara krullað eins og venjulega...þó
svolítið úfið, eftir beauty blundinn í hádeginu (með blautt
hár...úbbs)
núverandi pirringur: Að
geta ekki séð flottu jólaljósin sem eru komin upp í Århus og
helvítis sportlífeðlisfræði. Og kannski líka pínu þetta
klukkdót...BIRNA!!!!!
núverandi hlutur sem þú
ættir að vera að gera: Í rauninni ekki neitt. Er að vinna verkefni
með Hrefnus og Brynjus um málfar í skíðum...er að bíða eftir að
orðalistinn er tilbúinn svo ég geti vippað honum inní
Powerpoint.
núverandi
áhyggja: Prófin í desember
núverandi löngun: Að
prófin séu búin, Egill, prinsinn minn sé kominn heim í jólafrí, og
við séum komin heim í faðm fjölskyldunnar, í jólaljósin og með
smákökur og mjólk.
núverandi
ósk: Að ég eigi eftir að brillera í prófunum
núverandi farði:
Enginn
núverandi eftirsjá: Að
hafa borðað yfir mig af karmellum í hádeginu
núverandi vonbrigði: Engin, held ég
bara.
núverandi skemmtun: allar íþróttirnar
sem ég er í allan daginn, alla daga hér á
Vatninu
J
sérstaklega
blakið
J
núverandi ást: Án efa Egill Heinesen,
danaprinsinn minn. Búinn að vera það í sex og hálft ár, takk fyrir
takk
J
núverandi staður: S1.
Kennslustofa nr. 1 á Laugarvatni
núverandi bók: Physiology of Sport and Exercise
núverandi bíómynd: Hef bara ekki tíma til að horfa á sjónvarpið,
en Dirty Dancing alltaf klassísk
núverandi íþrótt: Ohh…blak og
strandblak. Skemmtilegast í heimi, en voða lítið af strandblaki
spilað hér á Vatninu.
núverandi lag á
heilanum: Don’t you want me baby
núverandi blótsyrði: Eiginlega ekkert...segi voða mikið, ”ohh
kjáninn þinn”. Það er víst bannað að blóta þannig að ég kalla bara
alla kjána í staðinn.
núverandi msn manneskjur: Heill aragrúi af
fólki
J
Allir þvílíkir sykurpúðar.
núverandi desktop mynd: Ógeðslega sæt mynd sem tekin var af
okkur IHS-stelpunum inná herberginu okkar Birnu, þar sem við vorum
að djamma og djúsa í síðasta skipti með Önnu Sif og Kristrúnu
Tinnu.
núverandi áætlanir fyrir kvöldið: Blakæfing, hlaupa og
lyfta. Klára verkefni og lesa í lífeðlisfræði fyrir tímann á
morgun. Og sofa snemma.
núverandi manneskja sem ég er að
forðast: Æji engin sérstök...
núverandi dót á veggnum:
(í herberginu okkar Hrefnu) Fullt af myndum af 4A-skvísuhópnum
mínum, mér, Hrefnu og Evu, Agli prins og sætu fjölskyldunni
minni
J
Jæja...þá er þetta búið. Vonandi
seinasta klukkið sem ég þarf að svara. Ef þið tókuð ekki eftir því
þá voru lykilorðin í þessu klukki: Egill sæti prins, próf og
lífeðlisfræði.
Vildi óska þess að ég
gæti hefnt mín á Birnu og klukka hana aftur, en ég get það víst
ekki. Ég er að hugsa um að klukka bara ekki neinn...vera smá góð
svona fyrir jólin
J
Jólakveðjur,
Vatnaprinsessan